|
Snillingar anskotans!!! ;)
|
27.10.2009 20:57:24 / arnig
Bara svona af forvitni,,,,,, eru einhverjir að
kíkja hér
inn???? Á maður þá að fara að kíkja í bloggið
aftur??
»
28.11.2008 09:34:23 / arnig
Sæl öll
ég ætla að hvíla mig á blogginu fram að
jólum. Þeir sem vilja fylgjast með mér eitthvað geta bara fylgst með
facebookinu hjá mér.
Sjáumst um jólin.......
Árni Gísli
»
22.11.2008 10:19:10 / arnig
.....hún er meira að segja í bloggi!! EN mig langar að koma frá mér smá kveðju! Sveinn Rúnar, til hamingju með að vinna Rímnaflæði, glæsilegur árangur og já bara frábært!!
Annars er voða lítið hjá mér að ske þessa dagana, er bara alltaf að vinna og læri svo þess á milli, kannski kem ég stöku svefn í verk við og við!! Átti að vera í fríi núna um helgina en tók að mér 2 vaktir, fæ reyndar frí í kringum tónleikana hjá óperunni í staðinn EN ég ætla ekki að segja ykkur hvað það var erfitt að vakna í morgun, sofnaði seint, sem gerði það að verkum að það var hryllilega erfitt að vakna!!
Jólin........eru að koma á næstunni, svei mér þá að það séu ekki bara 32 dagar í þau,,,,,maður verður að fara að smella í jólakort og hræra í smákökur!! Reyna kannski einu sinni að vera í tíma með allt þetta jólastúss svo maður geti haft það gott yfir jólahátíðina? Verð í Dalsmynni hjá henni Sillu systur á aðfangadag, ætla að slappa af og hafa það gott með fjölskyldunni, það verður þægilegt, og ennþá betra ef að þú Sigga systir kæmir og yrðir með okkur,,,,,,
Jæja þetta er fín lengt í bili,,,,,,,,Tíminn líður, pósturinn bíður, verð að þjóta!!! Árni Gísli
»
16.11.2008 10:32:57 / arnig
.....ætla ég að blogga pínu lítið afþví að það eru bara 38 dagar í jólin!!! Var að flakka um veraldarvefinn eins og svo oft áður þegar ég vinn í sundlauginni. Rakst þá á síðu þar sem var verið að kynna jólasveinana 24 sem eru sem sagt synir Grýlu úr fyrra hjónabandi,,,,,,Boli hét sá. Það má sjá hin ýmsu nöfn og hægt er að smella á myndina af sveinunum til að lesa aðeins um þá; Svartiljótur, Lummusníkir, Móamangi, Hlöðustrangi, Flotnös, Dúðadurtur, Reykjarsvelgur, Bjálminn sjálfur og Baggalútur. Þetta eru brot af nöfnunum sem finna má,,,,, slóðin er http://www.baggalutur.is/dagatal/ Gaman að þessu, endilega kíkjið á þetta og commentið hvað ykkur finnst.
Jamm og jæja og jæja þá,,,,,,, í fréttum er voða lítið þessa stundina, er bara alltaf að vinna, er að reyna að læra eitthvað og svo bara að reyna að lifa lífinu. Get samt sagt eitt, ég er mikið búinn að halda aftur af mér að skrifa eða hugsa um efnahagsmál en ég verð að segja eins og er, að þegar ég sé sniðuga lausn á málum þá er ekki hægt að halda þeim undir koddanum, ég var að flakka um netið og fór inn á síðuna hjá honum Palla Roomie, þá var hann búinn að blogga mikla lesningu sem ég las frá a-ö, og verður að segjast að þó svo að vinstri grænir séu nú frekar ruglaðir þá held ég að þeir séu að hitta naglann á höfuðið með norðurlandakrónuna, ekki þetta ESB evran mun líklega setja alla á hausin og svo líka þá finnst mér töff ef maður gæti farið til; Svíþjóðar, Danmörk, Noregs eða Færeyja eða eitthvað og alltaf borgað með sömu góðu krónunni, þyrfti aldrei að skipta gjaldeyri!! Mér finnst vert að skoða alla kosti vel og vandlega áður en við látum allt yfir okkur ganga það sem yfirvaldinu dettur í hug, það á að hafa þjóðarkostningu um allt núna á þessum tímum! En nóg um það, endilega lesa pistilinn hjá Palla, slóðin er: http://heinesen.blogcentral.is kíkið á það.
Jæja ég tel þetta vera nokkuð gott í bili.Árni Gísli
»
13.11.2008 19:35:51 / arnig
Alltaf gaman af því?? Jæja ég er ekki búinn að koma með blogg svo lengi að ég varð að sýna lit og krota pínu!! Er bara á fullu að læra núna, á að skila skýrslu í kvöld og svo fullt af litlum verkefnum fyrir morgundaginn!! Það er samt voða lítið að ske þessa dagana, vaknaði reyndar í gær, og fór með Heiðu á sandana, þar sem hún tók upp á því að vaða í sjóinn!! Gamann að því, svo fór ég á Akureyri í dag, til að heimsækja ömmu og versla,,,,,,auðvitað kom Heiða með mér og Þórdís vinkona hennar líka!! Líf og fjör,,,,,jæja ég nenni ekki að skrifa meira!! Ætla að halda áfram að læra!!!Árni Gísli
»
21.10.2008 16:15:51 / arnig
Já góðann daginn egg og beeeeiiiiiicon!!! Hvað er nú að ske í lífi mínu þessa dagana??? Það er svo sem ekkert svo rosalega mikið nema vinna, sofa, borða, læra og auðvitað allar stundir sem ég get verið með Heiðu og Louisu þá reyni ég að nýta þær.
Þessa dagana hef ég verið að reyna að sleppa við að horfa á fréttir og fylgjast með fréttum, en það getur sko aldeilis verið snúið, á öllum kaffistofum sem maður kemur á er verið að tala um fréttirnar og á öllum vinnustöðum þannig að þetta er ekkert einfalt......
Vá hvað ég veit ekkert hvað ég á að skrifa,,,,,,geymi það þangað til seinna.....
Árni Gísli
»
18.10.2008 10:18:58 / arnig
Já komið þið nú öll sæl og blessuð. Í dag er merkisdagur skal ég segja ykkur,,,,,,í dag er ég 24 ára og 8 daga gamall. Gaman af því ekki satt. Engann hefði órað fyrir því að ég næði svona miklum aldri miðað við að ég er svo ungur í anda!! Í raun er ég bara 19 eða 20 ára sem er auðvitað bara skemmtilegt.
Jæja nú er ég búinn að reyna að hlusta ekki, horfa ekki og lesa ekki fréttir,,,,,EN hvernig er annað hægt, uppgötvaði að ég er orðinn háður fréttavefum og ekki sýst fréttum í sjónvarpi, venjulega hef ég aldrei haft áhuga á að fylgjast með en núna einhvern veginn er mig farið að langa til að horfa á fréttir,,,,,,sem er skrítið. Annars tekst mér mjög vel til að sniðganga þessar blessuðu kreppufréttir, en alltaf gott að fylgjast aðeins með svo maður geti tekið þátt í kaffistofuumræðunni. Allir að horfa á Kompás á stöð 2 í næstu viku (held mánudaginn) í opinni dagskrá, það á að taka alla þessa kalla sem bera ábyrgð og sýna mynd af þeim. Þetta verður eitthvað sérstakt.
Annars hef ég voða lítið að segja,,,,JÚ heyrðu ég er að fara í tælenskan mat hjá Sillu systur í kvöld!! Hlakka mikið til, sérstaklega vegna þess að síðast þegar ég borðaði svona framandi mat lenti ég á sjúkrahúsi á spáni,,,,,,það var kannski meira útaf ofdrykkju,,,,,hmmmmmm jæja.Árni Gísli
»
16.10.2008 10:37:00 / arnig
Er með einhverskonar ritstíflu þannig að,,,,,
Þessi verður að vera á frummálinu annars missir hann marks. A male patient is lying in bed in the hospital, wearing an oxygen mask over his mouth and nose, still heavily sedated from a difficult four hour, surgical procedure. A young student nurse appears to give him a partial sponge bath. „Nurse', he mumbles, from behind the mask 'Are my testicles black' Embarrassed, the young nurse replies, 'I don’t know sir, I’m only here to wash your upper body and feet.' He struggles to ask again, 'Nurse, are my testicles black' Concerned that he may elevate his vitals from worry about his testicles, she overcomes her embarrassment and sheepishly pulls back the covers. She raises his gown, holds his penis in one hand and his testicles in the other, lifting and moving them around. Then, she takes a close look and says, 'There’s nothing wrong with them, sir.' The man pulls off his oxygen mask, smiles at her and says very slowly, 'Thank you very much. That was wonderful, but listen very, very closely Are - my - t e s t - r e s u l t s - b a c k '
Árni Gísli
»
13.10.2008 19:15:08 / arnig
Ég er kominn með nóg af íslenskri græðgi og hálfvitaskap, ég er búinn að liggja heima í allann dag veikur og er kominn með ógeð af fréttum og svoleiðis, það var reyndar löngu byrjað.....EN ég er búinn að uppgötva hve heimskir allir ríkir menn eru,,,,,,ég gæti vægast sagt ekki ábyrgst sjálfann mig ef ég myndi mæta einhverjum þeirra út á götu, þegar menn voga sér að segja í viðtölum að þó að fyrirtækin þeirra væru á hausnum þá hefðu þeir það nú nokkuð gott, ekkert á leiðinni að verða gjaldþrota!! HÁLFVITAR!!!!!! Íslendingar eru um það bil að fara að borga fyrir þá klúðrið og græðgina, mig langar að öskra þetta gerir mig svo pirraðann, en á móti kemur að ég er mjög ánægður að skulda, í íslenskum peningum í dag. Það er voða lítið sem hefur hækkað hjá mér annað en bensínreikningurinn, sem er reyndar að lækka aftur vegna þess hve mikið ég held aftur af mér.
Svo núna er ég hættur að tjá mig um þessi mál í bili nema það að ég ætla að koma með veðmál........hve miklar líkur eru á því að það verði boðað til skattahækkunar á næstu 6 mánuðum??? Endilega tjáðu þig um það......Svo er það skemmtilegri fréttir af mér! Ég átti afmæli á föstudaginn!! Dagurinn hjá mér byrjaði klukkan 06:00 þegar ég þvoði mér um hárið og náði svo í Heiðu því við vorum að fara að vinna. Það var fjör í vinnunni en við vorum að vinna í sundlauginni. Um hálf ellefu held ég kom sending til mín frá Ivano, Sillu, Aldísi og Palla en það var pakki með 4 hvítvínsglösum í og svona gróðrarkall. Svo um eitt leytið kom Silla með 24 blöðrur til mín sem hún, Ivano og krakkarnir í 10. bekk voru búin að skrifa ýmislegt fallegt á. Þegar ég var búinn að vinna fór ég í klippingu, lærði svo aðeins og fór svo til Heiðu minnar. Heiða og ég pöntuðum okkur pizzu sem var geggjað, svo fórum við niður í herbergið hennar og þar beið mín gjöf,,,,,,svona HEILSUKODDI ohhhhh svo geggjaður!!! Eftir að ég var búinn að knúsa Heiðu mína og kyssa hana helling fórum við upp aftur horfðum á sjónvarpið borðuðum eftirrétt og drukkum hvítvín, svo fórum við að sofa!! Svo var ég að vinna allann laugardaginn og í gær,,,,,gaman af þessu!! Árni Gísli
»
08.10.2008 13:59:35 / arnig
,,,,,,,,,,,stoltu viðskiptavinir Sparisjóðanna?? Ég held svei mér þá að ég hafi hitt naglann á höfuðið með að færa öll mín viðskipti til sparisjóðsins fyrir stuttu. Svei mér þá. Ekkert minnst á Sparisjóðina, nema þá kannski spron og sparisjóð mýrasýslu, en það er hægt að segja eins og er, sparisjóðirnir hittu naglann á höfuðið með auglýsingu sem var líklega á síðasta ári þar sem þeir sögðust einbeita sér að viðskiptavinum á ÍSLANDI en ekki vera með útrás eins og hinir bankarnir. Ég er ánægður með sparisjóð skagafjarðar, held svei mér þá að ég verði þar alla ævi, það mikið er ég ánægður.
Annars er alveg magnað að fylgjast með fréttum síðustu daga, sá í hádegisfréttunum að það væri gerður aðsúgur að Geir H. Haarde, HVAÐ ER ÞAÐ?!?!? OK sjálfstæðisflokkurinn þarf að éta ofaní sig vinnu og gerðir síðustu ára EN Geir er að gera sitt besta held ég. Mig langar samt að koma því á framfærið að ég er EKKI sjálfstæðismaður, XB það er það sem ég kýs. Geir kominn með lífverði 2 meira að segja, og securitas gætir fjármálaeftirlitsins allann sólahringinn. Hvað er að ske fyrir ísland??
Jæja ég nenni ekki að pústa meira í bili.
Árni Gísli
»
06.10.2008 14:45:02 / arnig
Já heill og sæll kæri lesandi, nú er komið nýtt útlit á bloggið, og nýjar víddir.......eða svona eitthvað. Ekkert eitthvað rosalegar breytingar en ég hef ákveðið að breyta aðeins til og fara að verða alvarlegri og koma með fleiri pælingar úr þjóðlífinu inn, samt í bland við gamla góða bullið sem ég mun aldrei vaxa uppúr. Vonandi líkar þér þessi breyting, en ef ekki þá geturðu bara hoppað upp í kreppurassinn á ríkisstjórninni. Neinei, þetta er samt ekkert grín hvað er að gerast, annars er ég orðinn þreyttur á öllum þessum fréttum, þetta er búið að vera svo mikið og lengi að þetta er eiginlega orðið leiðinlegt. Hins vegar þá ætla ég að lýta á björtu hliðina á þessu öllu saman og þakka fyrir að vera að vinna fyrir sveitarfélag, eða ríkið því að ég er ansi hræddur að mörg fyrirtæki fari á hausin, sko þessi litlu, því miður og þá held ég að það sé ágætt að vera með örugga vinnu, held allavega að ríkið fari ekki að reka fólk, hvaða vanda myndi það leysa, nei bara spyr. Annars þá verður ekki meira um hugleiðingar í dag. Ég vona að ég geti skrifað fljótlega aftur.
Árni Gísli.
»
03.10.2008 11:48:40 / arnig
.......heimurinn mætti kjósa bandaríkjaforseta??? Var í tíma í dag á Hólum þar sem að koma maður sem var að kynna markaðsetningu á internetinu,,,,,,,Hjörtur Smárason heitir hann, bloggið hans er blog.scope.is endilega kíkja á það. En allavega þá var hann að segja okkur að honum og félögum hans leiddist eitthvað um daginn og ákváðu að búa til síðu og sjá hvernig forsetakostningarnar í bandaríkjunum myndu fara ef að heimurinn mætti kjósa....... http://iftheworldcouldvote.com/ þetta er geggjað, mjög auðvelt og sniðugt, kíkjið á hve margir eru búnir að kjósa á íslandi og í bandaríkjunum,,,,,,, gaman af þessu!!! 
Annars er lítið að gerast núna, það snjóar og snjóar, ég er kominn á nagladekk sem voru dýr og allt í brillerýi!!! Nenni eiginlega ekki að skrifa meira núna en endilega kíkja á: http://iftheworldcouldvote.com/....................kjellinn OUT!!!! 
P.S. Þetta er síðasta P.S. í bili!!!
»
02.10.2008 00:55:29 / arnig
Heyrðu skellti snöggvast inn nýrri könnun......hér eru niðurstöður úr þeirri gömlu.....Nú nálgast Laufskálarétt óðfluga,,,,,hvað á að gera???Skella mér í hópreiðina, réttirnar, partý og á ball (allur pakkinn) 5 atkvæði Fer kannski á réttirnar en ég ætla á ball!! 7 atkvæði Laufskálarétt? hvað er það, fer bara alltaf á Laufskálaréttarball! 1 atkvæði Ef ég hef ekkert annað að gera þá geri ég eitthvað. 1 atkvæði Ég verð ekki í Skagafirði þegar réttirnar eru!! 2 atkvæði Ég ætla að vera nörd og hanga heima!! 2 atkvæði Ég ætla bara að vera heima á Selfossi og slappa af. 2 atkvæði Nei nú eru þessar kannanir alveg í ruglinu ÁG fyrst jól og svo eitthvað svona bull!!!! 2 atkvæði Fjöldi atkvæða: 22 ................Kjelinn OUT!!!! 
P.S. nennir einhver að skrifa í gestabókina????
»
29.09.2008 21:01:26 / arnig
Jæja þá er þetta orðið
hörkuspennandi,,,,,,,HVER VERÐUR
NÚMER
20.000 TIL AÐ KOMA INN Á BLOGGIÐ
MITT????
Ég er geggjað spenntur yfir þessu........
Annars þá er laufskálaréttarhelgin búin,,,,,,hún var mjög skemmtileg, var að telja fólk í 2 klukkutíma á laugardaginn, dró 3 hesta með pabba og fór svo og spurði nokkra spjörunum úr......fór heim, sofnaði smá, borðaði góðann mat sem aldís og palli elduðu, fékk nokkra í heimsókn,,,,,takk fyrir innlitið svana......fór á ball,,,,,skemmti mér mjöööög vel fór heim og svaf svo mest allan gærdaginn, svo er gamli bara búinn að vera að vinna í dag og verður að vinna til miðnættis eða svo. 
Jæja ekki lengra í bili.... 
...........kjellinn OUT!!!!! 
P.S. Eru allir orðnir leiðir á P.S.-inu mínu?????
»
25.09.2008 18:40:27 / arnig
Það verður að segjast eins og er að nú er maður virkilega stoltur af lögreglunni á sauðárkróki. Á innan við viku hefur lögreglann á sauðárkróki komið í fréttum í sjónvarpi, blöðum, netinu og á bloggsíðum vegna góðra mála,,,,,eða að finna og leggja hald á fíkniefni eða áhöld til fíkniefnaneyslu. Þetta má segja að loksins sé komin góð umræða um lögregluna á sauðárkróki, sem hefur svosem alveg verið en loksins er hún orðin það sýnileg og margir farnir að tala um það. Maður fer að hugsa sig um með að keyra of hratt eða brjóta lög á einhvern hátt. Ég undirritaður fagna Lögreglunni á Sauðárkróki og lýsi yfir með mikilli ánægju að ég bý í skagafirði.
Annars þá er laufskálarétt á næsta leiti, nýjasta verðurspá sýnir að það veður á bilinu 0-5 stiga hita og smá úrkomu þegar líður á daginn. Suðvestan 5-10 metrum á sek. sem þarf ekki að vera að komist í laufskálaréttirnar!! 
Það verður líf og fjör í laufskálarétt. Sjáumst þar,,,,,blogg eftir helgi,,fylgstu með................Kjellinn OUT!!!! 
P.S. Ahverju má löggan ekki vera cool??? Er ekki hægt að gera hana cool og samt virðulega???
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Heimsóknir
Í dag: 26 Alls: 33493
Talning
Fyrir 47 dögum
Koma jólin....
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 27 október
|